Ummál | 14 × 70 × 20 cm |
---|
Houston hnakkapúði 70×20 Kentucky koníak
24.900 kr.
Hnakkapúði við Houston sófann. Houston er glæsilegur hornsófi sem passar í allflest rými. Hallaðu þér aftur og leggðu höfuðið á þéttingsmjúkan hnakkapúða, þannig nýtur þú hámarks þæginda í sófanum þínum. Hnakkapúðar fást í sömu litum og sófarnir.
Uppselt
Available in stores:
- Ekki til í vöruhúsi/vefverslun
- Smáratorg - sýningareintak
- Holtagarðar
- Ísafjörður
- Akureyri
Houston sófarnir fást 2,5 og 3ja sæta, sem horn-, tungu- eða u-sófar í brúnu, gráu eða koníakslitu bonded leðri (ekki er víst að allar útgáfur komi í öllum áklæðum eða að allar gerðr séu alltaf til á lager). Í Houston línunni fást líka hnakkapúðar og skammel fyrir enn meiri þægindi. Fætur sófanna eru allir grannir en sterkir úr svörtum viði. Sófi á góðu verði, nettur en samt er svo þægilegur.
Seta og bak beggja sófanna sem og stólanna eru lausar pullur sem sitja þó vel og renna ekki. Innra byrði er úr endingargóðum, kaldpressuðum svampi, þá trefjafyllingu og loks mjúku yfirlagi.
Kentucky er bonded leður vönduð leðurblanda (30.000 Martindale). Bonded leður (leðurblanda) er í raun blanda af ekta leðri og gervileðri. Framleiðsluferlinu svipar til pappírsframleiðslu þar sem leðurleifar og leðurtrefjar eru tættar og þeim blandað saman við önnur textílefni til að líkja eftir eiginleikum leðurs. Gott bonded leður er með háu hlutfalli leðurs. 35% áklæðisins í Houston er ekta leður sem er hærra hlutfall en algengt er.
Breidd: 70 cm Dýpt: 14 cm Hæð: 20 cm