Ummál | 145 × 242 × 85 cm |
---|
Tampa tungusófi Troy ljósgrár Eb
Tilboð143.920 kr.
Stílhreinn og flottur tungusófi í slitgóðu áklæði sem fæst ljós- eða dökkgrátt, fætur eru úr ljósum viði. Tungan er auðveldlega færanleg frá hægri til vinstri (sjá vörumynd). Hæð baks er um 44 cm. Sethæð: 46 cm. Tampa sófinn fæst í mörgum útfærslum.
Aðeins 2 eftir á lager
Bæði pullur í setu og baki eru þéttar og þægilegar. Áklæði þeirra má taka af og skola en það þolir ekki þvottavél. Armar Tampa sófanna eru um 16 cm breiðir. Tungur þeirra eru um 88 cm en horntungueiningar ögn breiðari eða um 92 cm.
Fyrir enn meiri þægindi er hægt að bæta við hnakkapúðum, það er ótrúlega þægilegt að halla sér vel aftur og leggja höfðið á hann. Einnig er hægt að fá við Tampa sófann sérstaka millipúða en þeim er stungið milli sætanna og þannig má fá armstuðning í hvert einasta sæti ef óskað er.
Tampa fæst tveggja sæta, þriggja sæta, sem hornsófi, tungu- og u-sófi. Sófarnir eru fastir, þ.e. eingöngu er hægt að setja þá saman á einn hátt svo tungur og horn eru ekki færanleg frá vinstri til hægri. Undanskilinn er þó tungusófinn þar sem tungan færist auðveldlega milli hliða.
Breidd: 242 cm Dýpt: 145 cm Hæð: 85 cm