Sealy Victories Posturepedic Plus 160×200 cm rúm

287.900 kr.

Nýja Sealy Woodlake Posturepedic Plus dýnan er gerð úr hágæða efnum og einstakri (einkaleyfisvarinni) tækni frá Sealy. Posturepedic Plus tæknin í dýnunni gefur einstakan stuðning við mjóbak og mjaðmasvæði sem spilar einkar vel saman við háþróað gormakerfi dýnunnar.

 

Sealy Woodlake dýnan lætur þér líða eins og þú svífir í svefni. Minnissvampur með kæligeli dreifir þyngd þinni um dýnuna og aðlagast líkama þínum. Lag af Pulse latexi gefur aukna fjörðrun og góða mýkt. Ofan á minnissvampinn er svo sett lag af ull sem gerir öndunina í gegnum dýnuna mun skilvirkari og betri. Svefninn verður áreynslulaus og morgnarnir verða bjartari fyrir vikið.

 

Sealy Woodlake Posturepedic Plus dýnan er gerð úr nýju háþróuðu gormakerfi sem inniheldur 18 cm háa pokagorma en um 2000 gormar eru í dýnunni. Sealy styður því sannarlega við þig.

 

Ofan á gormakerfið eru lögð fimm mismunandi lög af minnissvampi með kæligeli sem og öðrum þægindasvampi til að gera dýnuna framúrskarandi. Lag af Pulse latexi er í dýnunni sem er náttúrlegt latex og er einkar umhverfisvænt þar sem mjög litla orku þarf í framleiðslu þess. Aukalag af svampi liggur svo yfir miðjusvæði dýnunnar þar sem þú þarft mesta stuðninginn. Postuerpedic Plus tæknin gerir dýnuna einstaka. Ullin leggur svo lokapunktinn til þess að þér líði sem best á henni. Ullin dregur í sig hita og gerir því svefn þinn heilsusamlegri og þægilegri.

 

Áklæði Sealy Woodlake dýnunnar er gert með nýrri Feran Ice tækni sem gefur kælingu og öndun sem skilar sér í mun betri svefni. Áklæðið er bakteríudrepandi og öll efni í dýnunni eru vottuð. Því eru engin skaðleg efni í dýnunni, hvorki í svampi né áklæði og kolefnisspor hennar er í lágmarki. Sealy leggur mikinn metnað í að lækka kolefnisspor sín við alla framleiðslu.

 

Sealy Woodlake Posturepedic Plus hentar öllum svefnstellingum þar sem hún lagar sig fullkomlega að þyngd þinni og þörfum.

 

Sealy er númer 1 þegar kemur að mest seldu heilsudýnum í Ameríku og ein ástæða fólks fyrir að velja Sealy fram yfir önnur vörumerki er meðal annars sú að framleiðslan er innblásin af vísindum og milljónir treysta henni.

 

Sealy – þægindi sem þú getur treyst.

Sealy Victories Posturepedic Plus 33 cm há heilsudýna

Nýja Sealy Victories Posturepedic Plus dýnan er gerð úr hágæða efnum og einstakri (einkaleyfisvarinni) tækni frá Sealy. Posturepedic Plus tæknin í miðju dýnunnar gefur einstakan stuðning við mjóbak og mjaðmasvæði sem spilar einkar vel saman við háþróað gormakerfi dýnunnar.

 

Þyngd þín dreifist mun betur um Sealy Victories dýnuna og gerir það að verkum að líkaminn fær jafnan stuðning og þér líður eins og þú svífir í svefni. Minnissvampur með kælingu aðlagast fullkomlega að þinni líkamsbyggingu. Svefninn verður því áreynslulaus og þú vaknar tilbúin/n í daginn.

 

Sealy Victories Posturepedic Plus dýnan er gerð úr nýju háþróuðu gormakerfi frá Sealy sem inniheldur 18 cm háa pokagorma en um 2000 gormar eru í dýnunni. Ástæðan er einföld, betri aðlögun og ending.

 

Ofan á gormakerfi dýnunnar eru lögð fimm mismunandi lög; minnissvampur með kælingu sem og af öðrum þægindasvampi sem gerir dýnuna einstaklega þægilega. Aukalag af svampi liggur svo yfir miðjusvæðið sem er byggð á Posturepedic Plus tækninni, sem gerir dýnuna einstaka.

 

Áklæði dýnunnar er gert með nýrri Feran Ice tækni sem gefur kælingu og öndun sem skilar sér í mun betri svefni. Áklæðið er bakteríudrepandi og öll efni í dýnunni eru vottuð því eru engin skaðleg efni í henni, hvorki í svampi né áklæði og kolefnisspor hennar er í lágmarki. Sealy leggur mikinn metnað í að lækka kolefnisspor sín við alla framleðslu.

 

Sealy Victories Posturepedic Plus hentar öllum svefnstellingum þar sem hún lagar sig fullkomlega að þyngd þinni og þörfum.

 

Áralöng þróun á PosturePedic Plus þægindalaginu hefur skilað okkur þessari einstöku dýnu sem þú hreinlega verður að prófa.

 

Ef þú vilt vakna úthvíld/ur þá er þetta rétta dýnan fyrir þig.

 

Classic botn 160x200 cm

Einfaldur en góður botn. Ath. kemur ósamansettur en góðar leiðbeiningar fylgja. Áður en dýnan fer á þarf cover yfir (sjá Classic cover – selst sér, hægt er að velja um þrjár gerðir). Fætur fylgja öllum botnum og sterk miðspýta fylgir stærstu stærðum.

Sjá leiðbeiningar fyrir samsetningu Classic botna hér: https://dorma.is/botnar-samsetning/

53.000 kr.

Á lager

Classic cover 160x200

Classic cover fást í svörtu og hvítu pu-leðri og í gráu áklæði (bæði í „hefðbundnu áklæði og einnig í sléttflaueli). Coverið fer utan um Classic botn (selst sér) og hlífir bæði dýnu og botni. Á aukamyndum við sumar stærðir má sjá coverið á Classic botni.

Sjá leiðbeiningar fyrir samsetningu Classic botna hér:

https://dorma.is/botnar-samsetning/

Breidd: 90 cm    Dýpt: 200 cm   Hæð: 40 cm    

Ummál 200 × 90 × 40 cm

Sealy Victories Posturepedic Plus 33 cm há heilsudýna

Ummál Á ekki við

Classic botn 160x200 cm

Þyngd 80 kg
Ummál 200 × 160 × 32 cm

Classic cover 160x200

Ummál Á ekki við